McDonalds gaf mér 100 pund.
01. apríl 2007 klukkan 15:27
Í dag var farið á McDonalds í hádeginu. Grétar Steinn pantaði tvær kjúklingamáltíðir, lítið af frönskum og lítið af gosi. Í ljós koma að það var einskonar happdrætti í gangi og hvað haldiði, jú mikið rétt, Leibbinn vann 100 pund uppí utanlandsferð hjá Thomas Cook. Mikið var ég glaður.
Í fyrrakvöld pantaði ég bíómiða á netinu á nýju myndina með Mr. Bean, að sjálfsögðu ætluðum við í bíó á Leicester Square. Grétar vildi endilega fá að renna yfir pöntunina fyrst að ég væri að panta þessa miða, ég sagði að hann þyrfti þess ekki. Þegar að við vorum loksins komnir í bíóhúsið sting ég kortinu í vél til þess að fá miðana en þessi ágæta vél vildi ekkert kannast við að ég ætti pantaða miða. Við fórum því í Virgin Megastore og keyptum okkur DVD, ég var mjög svekktur og bölvaði þessarri andsk ... tölvum, engu hægt að treysta svona í gegnum netið. Þegar að heim var komið athugaði ég hvað hafði eiginlega skeð, jú svo óheppilega vildi til að ég pantaði miðana í borginni Leicester en ekki hérna í London á Leicester Square.
Þvílík ólukka.
Leifur Hjörleifsson
8 athugasemdir
8 athugasemdir